Um okkur
Hleðslulausnir sem henta öllum
Hjá okkur finnur þú hleðslustöðvar sem henta öllum rafbílum fyrir heimilið, fyrirtæki og fjölbýlishús.
Heimahleðslustöð er besta leiðin til þess að hlaða rafbílinn heima. Við aðstoðum þig við allt sem til þarf.
 
Hleðslustöðvar eru hryggjarstykkið í hleðslulausn heimilsins. Það er mikilvægt að vanda valið og skoða hleðslutíma, hleðslugetu og týpu. Kynntu þér úrvalið í vefverslun okkar.
Hleðslukapall er mikilvægur ferðafélagi fyrir bæði rafbíla og plugin-hybrid. Við bjóðum einungis gæða kapla sem gerðir eru til þess að endast. Allir okkar kaplar eru 32 amper.
Hjá Ísorku færðu fast verð á uppsetningu þar sem er innifalið; Allt efni, allt að 10 metra lagnaefni, uppsetning, tilkynning til HMS og framlengd ábyrgð á heimahleðslustöðum.
 
                                                    Ísorka heldur úti hleðslustöðvum víðsvegar um landið. Til að nota þær þarf að setja upp smáforrit Ísorku þar sem þú getur fyglst með orkunotkun og hleðslu.
 
Ísorka er leiðandi í lausnum fyrir fjölbýli á Íslandi. Notendaupplifun og virkni er það sem Ísorka tryggir allan sólarhringinn.
Ísorka ráðleggur húsfélögum og sér um alla uppsetningu.
Ef þitt húsfélag á rétt á styrk, veitum við þér ráðgjöf ásamt tilboði í verkið.
Hver notandi borgar fyrir sína notkun án vandræða fyrir húsfélagið.
Ísorka er traustur samstarfsaðili sem sér ekki bara um uppsetningu á hleðslustöðvum og lausnum þeim tengdum heldur viðhald og þjónustu. Okkar markmið er að þín orkuskipti verði auðveld og áhægjuleg.
 
Veittu starfsfólki þínu aðgang að hleðslustöð og auktu þannig starfsánægju og hagkvæmni í rekstri. Við bjóðum allar lausnir sem snúa að rekstri hleðslustöðva sem og álagsstýringar til þess að hlaða bílaflotann þinn. Lausnin vex í takt við þínar þarfir og notkun.
Laðaðu að viðskiptavini og vektu athygli með því að bjóða upp á hleðslu hjá þínu fyrirtæki. Ísorka finnur lausnina sem hentar þínum aðstæðum og kemur að öllum verkþáttum sem snúa að vali á búnaði og uppsetningu.
Við þekkjum hvaða ívilnanir, styrki og afslætti þitt fyrirtæki gæti nýtt sér til að fjármagna uppsetningu og fá tekjur af hleðslustöðvum.